Nýjar höfuðstöðvar ÓJ&K-ÍSAM ehfVið erum á Korputorgi

Heimilisfangið er Blikastaðavegur 2–8.

Vöruafgreiðsla fyrir sóttar vörur er á austurhlið Korputorgs (snýr að Vesturlandsvegi, Úlfarsfelli), en gengið er inn á skrifstofur um inngang að vestanverðu (snýr að Korpúlfsstöðum).

Vefverslun Hvernig virkar vefverslun?

Söludeild

Afgreiðslutími

Mán.–fös.: 08:00–16:00

Pöntunarsími

535 4000

Vöruhús

Afgreiðslutími

Mán.–fim.: 08:00–17:00
Föstudag: 08:00–16:00

lesa meira

Smásala Rótgróin og traust heildsala

ÓJ&K er rótgróin og traust heildsala sem flytur inn og dreifir fjölbreyttu úrvali af dagvöru til sölu í verslunum. Við bjóðum fjölmörg þekkt vörumerki í matvöru, sælgæti, kaffi, snyrti- og hreinlætisvörum og erum með öflugan flokk sölumanna sem sinnir öllu landinu með reglulegum heimsóknum.

lesa meira

Veitingastaðir & kaffihús Sælkeradreifing

Við sinnum stóreldhúsum undir merkjum Sælkeradreifingar. Við bjóðum upp á gæðahráefni og vörur fyrir veitingahús, mötuneyti, bakarí, hótel og aðra stórnotendur; í raun allt sem þarf í eðalmáltíð, hvort sem um er að ræða margverðlaunað nautakjöt eða vegan-rétti, sushi- hráefni eða nýja, bleika Ruby súkkulaðið. Sölumenn okkar eru menntaðir fagmenn, bæði matreiðslumenn og bakarar.

lesa meira

Lýsing Lýsingarsvið

Við erum sérhæfð í öllu sem tengist lýsingu. Við bjóðum ljósabúnað og fylgihluti frá Philips Lighting, allt frá minnstu heimilisljósum upp í götulýsingu og flóðlýsingu á íþróttaleikvöngum. Hjá okkur má einnig fá sérhannaða lýsingu fyrir margs konar vinnustaði sem og skrautlýsingu fyrir heimili. Við erum til dæmis með allt sem tengist fjarstýrðu litalýsingunni frá Philips Hue.

Hestavörur Mikið úrval af gæðavörum

Við seljum hestavörur frá ýmsum framleiðendum, einkum vörur sem snúa að umhirðu hófa. Meðal annars seljum við járningavörur frá Mustad – vörumerki sem vart þarf að kynna fyrir hestamönnum. Gæði varanna frá þessum sænska framleiðanda eru óumdeild og gildir þar einu hvort rætt er um skeifur, hóffjaðrir eða járningaverkfæri.

Þú þekkirVörumerkin okkar

  • ajax
  • Santa Maria