Kaffideild ÓJ&K-ÍSAM býður upp á ráðgjöf og þjónustu til fyrirtækja sem vilja bjóða starfsmönnum og viðskiptavinum sínum gott kaffi.
Starfsmenn okkar búa yfir sérþekkingu á þeim vélum og búnaði sem þarf til að laga gott kaffi auk þess að þekkja vel kaffið og framleiðsluferli þess. Við höfum þekkingu og reynslu af vélum sem við mælum sérstaklega með frá þekktum framleiðendum sbr. Fetco, Rheavendors og Rancilio. Einnig erum við með umboð á expressóvélum frá La Marzocco en þær vélar má sjá á kaffihúsum Kaffitárs.
Ekki hika við að senda okkur fyrirspurn.