Fréttir & tilkynningarNý og endurbætt vefverslun
Við höfum opnað nýja og endurbætta vefverslun sem einfaldar pantanaferli og bætir þjónustu við viðskiptavini fyrirtækisins. Með nýju lausninni geta viðskiptavinir nálgast vöruframboð fyrirtækisins á skilvirkari hátt og gengið frá pöntunum á einfaldan og þægilegan máta.
Vefverslunin hefur verið endurhönnuð með notendaupplifun að leiðarljósi. Með uppfærslunni styttist pöntunarferlið og dagleg innkaup fyrirtækja verða hraðari og þægilegri.
Með nýju vefversluninni höfum við tekið upp rafræna auðkenningu til að auka öryggi og bæta þjónustuna. Því þurfa allir að sækja um aðgang að vefversluninni að nýju.
Allir sem skrá sig fyrir 20. apríl fara sjálfkrafa í pott þar sem dregið verður um glæsilegt PING golfsett fyrir sumarið.
Hér geta viðskiptavinir sótt um aðgang að vefversluninni.
Ef þú þarft aðstoð ekki hika við að senda okkur póst á pantanir@ojk-isam.is eða hringia í síma 535-4000.
Við hlökkum til samstarfsins.
Bestu kveðjur,
Starfsfólk ÓJ&K – ÍSAM