Stóreldhúsadeild ÓJ&K-ÍSAM er einhver hin öflugasta á landinu, en hún varð til við samruna stóreldhúsadeildar ÍSAM og Sælkeradreifingar, stóreldhúsahluta ÓJ&K. Sælkeradreifing er fagfólki í veitingageiranum að góðu kunn enda bakhjarl margra fremstu matreiðslumeistara landsins um árabil.
Við bjóðum upp á gæðahráefni og -vörur fyrir veitingahús, mötuneyti, hótel og aðra stórnotendur – og sinnum bakaríum líka sérstaklega. Í raun bjóðum við upp á allt sem þarf til að útbúa hinn fullkomna málsverð, hvort sem er margverðlaunað kjöt í veisluna, fjölbreytt og spennandi úrval af vegan-réttum, litríkt og frískandi sushi … nú eða hráefni í bakkelsisdraum konditorsins. Sölufulltrúar okkar eru menntaðir fagmenn, bæði matreiðslumenn og bakarar – og alltaf á tánum varðandi nýjungar, enda hugsa þeir vel um viðskiptavini sína.