Fréttar og tilkynningarFramúrskarandi fyrirtæki 2026

Það er okkur mikil ánægja að tilkynna að ÓJ&K-ÍSAM hefur uppfyllt þær ströngu kröfur sem gerðar eru til Framúrskarandi fyrirtækja 2026 og er þar með komið í úrvalshóp þeirra fyrirtækja sem hljóta þessa viðurkenningu. Aðeins 2% fyrirtækja á Íslandi standast þær kröfur og erum við því afar stolt af þessum árangri.

Viðurkenningin er mikilvæg staðfesting á traustum rekstri, vönduðum vinnubrögðum og þeim metnaði sem við leggjum í starfsemi okkar á degi hverjum. Hún er okkur jafnframt hvatning til að halda áfram á sömu braut og leggja áherslu á gæði, fagmennsku og heiðarleika í samskiptum við viðskiptavini og samstarfsaðila.

Við viljum þakka starfsfólki okkar fyrir þeirra mikilvæga framlag til þessa árangurs, sem og viðskiptavinum og samstarfsaðilum fyrir traustið og ánægjulegt samstarf.

Opnunartímar

Söludeild

Opnunartími
Mán.–fös.: 08:00–16:00
Pöntunarsími
535 4000
Netfang
pantanir@ojk-isam.is

Vöruhús

Opnunartími
Mán.–fim.: 08:00–17:00
Föstudag: 08:00–16:00
Pöntunarsími
535 4000
Netfang
voruhus@ojk-isam.is