Í söludeild ÓJ&K-ÍSAM starfa 55 sölumenn. Hluti þeirra sér til þess að vörur sem ÓJ&K-ÍSAM flytur inn og dreifir fáist í flestum dagvöruverslunum landsins.
Tveir sölumenn eru staðsettir á Akureyri og sinna sveitarfélögum norðan heiða. Aðrir sölumenn sinna stóreldhúsum landsins, þeir eru allir menntaðir í sínu fagi, ýmist matreiðslumenn eða bakarar.
Um 30 manns sinna skrifstofustörfum sem styðja við meginrekstur fyrirtækisins, þ.e. innheimtu, bókhaldi, tollafgreiðslu, símsvörun í þjónustuveri og tölvuþjónustu.